Beint í efni

Verð

Fast mánaðarverð sem vex með skólanum

Verðið ræðst af fjölda virkra nemenda. Allt er innifalið — engin aukagjöld, engin binding og engin prósenta af skólagjöldum. Allir skólar byrja á 14 daga fríu tímabili. Verð eru í íslenskum krónum án virðisaukaskatts.

Virkir nemendurVerð á mánuðiAðgerð
Allt að 5014.900kr.Prófa frítt í 14 daga
Allt að 10024.900kr.Prófa frítt í 14 daga
Allt að 250Algengast39.900kr.Prófa frítt í 14 daga
Allt að 50059.900kr.Prófa frítt í 14 daga
Allt að 1.00089.900kr.Prófa frítt í 14 daga
1.000+SértilboðHafa samband
01

Innifalið

Eitt kerfi, sama virkni

Þrepið takmarkar aðeins hversu margir nemendur geta verið í námi. Kennarar, skrifstofa, gáttir og aðstoðarmaðurinn fylgja öllum áskriftum.

  • Kennitöluuppflettingar
  • Foreldra- og nemendaaðgangur
  • Kennaraaðgangur
  • Samskipti
  • Stundatöflur
  • Greiðslu- og reikningsvirkni
  • API
  • Appið, þegar það kemur
02

Spurt og svarað

Algengar spurningar

Hvað telst virkur nemandi?
Nemandi í námi — virkur eða í hléi. Þeir sem eru útskrifaðir eða í geymslu telja ekki með.
Hvað gerist eftir fría tímabilið?
Eftir 14 daga þarf að staðfesta áskrift til að halda áfram að breyta gögnum. Þið tapið engu — skólinn og gögnin bíða þar til þið ákveðið ykkur.
Hvað gerist ef við förum yfir þakið?
Þið getið ekki bætt við fleiri nemendum í námi fyrr en þið færið ykkur upp um þrep. Gögnin haldast og þrepi má breyta hvenær sem er.
Hvernig er greitt fyrir tunes?
Við sendum reikning mánaðarlega, í banka eða með korti. Sveitarfélög og stofnanir geta fengið ársreikning.
Getum við flutt gögn úr öðru kerfi?
Já. Nemendalista, forráðamenn og hljóðfæri er hægt að flytja inn úr töflureikni og við hjálpum til við það án aukakostnaðar.
Hver á gögnin?
Skólinn. Þið getið sótt allt sem þið hafið sett inn hvenær sem er og við eyðum gögnum að ósk þegar áskrift lýkur.
Tekur tunes hlut af skólagjöldum?
Nei. Áskriftin er fast mánaðarverð. Greiðslugáttir (Teya, Straumur, Stripe) taka sín eigin færslugjöld samkvæmt samningi ykkar við þær.

Vantar svar? Hafðu samband og við svörum sama dag.

Óviss um stærð? Byrjaðu á Allt að 250.

Þú getur fært þig upp eða niður hvenær sem er, líka á fría tímabilinu — og valið þrep aftur á skráningarsíðunni.

Prófa frítt